Lokadagarnir í JinJu

Posted November, 05 2011

JinJu

Í dag kveðjum við JinJu eftir alveg súper vel heppnaða ferð.. og JinJu búar vægast sagt hafa tekið ástfóstri við okkur… þvílíkar viðtökur. Sýningin er að klárast og rútan á leiðinni…

Hendi inn nokkrum myndum – hef ekki tíma til að skrifa mikið að sinni, en reyni að henda inn ferðasögu í kvöld – svo er það bara Ísland á morgun

Víkingur í safni

Víkingur Kristjánsson

Héldum að sjálfsögðu partý fyrir kóresku vini okkar - þvílíkt sem þau hafa staðið sig vel og eru alveg einstaklega frábær

svalir í partýinu

ömmi,kóreskur vinur og íslenskt brennivín - frábær blanda

Garðar, Unnur og Þórunn - þeim fanst svo gaman í partýinu

Snillingarnir Amelie & Tency

smile....

Túlkurinn & dresserinn

þessi datt í brennivínið... og fór fljótt heim

svona líka gaman...

fjöllistahópurinn...

Doddi, Elíin og Unnur

Ég og aðalgæinn í leikhúsinu - Leikhússtjórinn sjálfur mætti í partýið okkar

ég og kóreskur vinur úr leikhúsinu - sá var sáttur við að fá að eiga restina af bjórnum

Héldum svo skemmtilegt partý á þaki leikhúsins þar sem við buðum uppá veigar til að þakka fyrir okkur – Halli Volvo og Víkingur héldu smá ræðu og svo var bara skálað í íslenskt brennivín og skemmt sér saman – á miðnætti þurftum við að kveðja þakið ( ansi strnagar reglur hér í Kóreu ) og þá var kvöldið bara rétt byrjað….

við byrjuðum að sjálfsögðu á lókal karíókí barnum okkar… en svo tók við ansi skemmtilegt kvöld með heimapartýi og fleira… meir um það síðar, þar sem rútan er að fara að leggja af stað og ég vil síður verða ein eftir í JinJu … þó svo að ég dýrki það að vera hér 🙂

Einar að reyna að finna sér lag til að syngja á Karíókí barnum

Set eina mynd hér af karíókíbarnum …svo bara to be continued….