LOKADAGURINN Í SEOUL

Posted October, 30 2011

LOKADAGURINN Í SEOUL

당신을 사랑합니다서 울

Þá er lokasýningin a Faust hér í Seoul hafin. Sýningarnar hafa gengið það vel að leikarar hafa verið spottaðir útá götu og beðnir um eiginhandaráritanir….

Einnig hafa leikarar verið spottaðir útí lyftu leikhússins og það er ótrúlegu upplifun fyrir áhorfandann sem og leikarann… þar sem kóreubúarnir vilja ólmir snerta stjörnurnar og trúa ekki aðstöðunni sem þeir eru komnir í

Diddi og Maggi - á leið á svið
Diddi og Maggi – á leið á svið

í dag byrjaði sýningin kl 1600 og því gafst smá tími í bæjarferð áður en sýningin hófst. Sumir fóru á rafmagnsmarkað og gerðu dúdur kaup á myndavélum… aðrir shoppuðu og sumir fundu æðri mátt….

Búddar- duttum í klaustur
Búddar- duttum í klaustur
Fótabað úti á götu..
Fótabað úti á götu..
Búddamunkar
Búddamunkar

Eftir sýninguna í kvöld verður leikmyndinni pakkað niður og flutt til Jin Ju sem er hér sunnan við Seoul. Við förum svo með rútu þangað á morgun sem tekur 4 tíma. Þetta er víst alveg frábær bær ( 300.000 sem búa þar ) og er víst enn sumarveður þar… ekkert að því.Þar munum við sýna 2 sýningar af Faust.

Gísli að reyna að komast út úr leikhúsinu
Gísli að reyna að komast út úr leikhúsinu

Við munum væntanlega detta á ítalskan stað í pizzur eð vinnu lokinni í dag.. og hver veit nema að karaoke´ið verði svo stúterað

Kóreskur matur - mannskapnum finnst hann mis girnilegur :)
Kóreskur matur – mannskapnum finnst hann mis girnilegur 🙂

En fyrst þarf að huga að búningum, leikmynd, ljósi og hljóði… allt verður að fara með til JINJU

Búningara bíða leikara sína
Búningara bíða leikara sína
þeir eru svalir og þeir vita það...
þeir eru svalir og þeir vita það… Maggi / Thorbjörn/Seli/Hlynur/Gísli

Þó það sé  sól og blíða ( hlírarbolsveður ) hér í Sól í dag …og borgin heldur áfram að vera jafn frábær og ávalt eru þeir farnir að draga fram jólastemmningu… maður er greinlega aldrei of snemma á ferð…

Jólaskrautið komið í verslanir enda um helmingurinn hér kristinn..
Jólaskrautið komið í verslanir enda um helmingurinn hér kristinn..

Jæja sýningin er að ljúka – þarf að fara að huga að pökkun… kveð í bili með ljúfa FAUST tóna í bakgrun…

~ 안녕 / annyeong Rakel