JinJu here we come

Posted November, 01 2011

JinJu here we come

Þá kvöddum við hótelið í Seoul og náðum öll ( sumir með naumindum ) rútunni til JinJu.

Þessi mætti á réttum tíma í rútuna
Þessi mætti á réttum tíma í rútuna
þessi voru ready to hit the road..
þessi voru ready to hit the road..
pakkað í rútuna flottu sem mun taka okkur í næsta ævintýri
pakkað í rútuna flottu sem mun taka okkur í næsta ævintýri
Canon bæður
Canon bæður
Einar náði sér í bol með sjálfsmynd á.... Sniglabandið er að gera góði hluti í Sól
Einar náði sér í bol með sjálfsmynd á…. Sniglabandið er að gera góði hluti í Sól
beðið eftir brottför..
beðið eftir brottför..
nei sko .. sniglabandið á aðdáendur í Kóreu..
nei sko .. sniglabandið á aðdáendur í Kóreu..

og rútan var 1st class..

á leiðinni til JinJu sem er rúmlega 300.000 manna bær sunnan af Seoul.. ferðin var ljúf og tók um 4 tíma
á leiðinni til JinJu sem er rúmlega 300.000 manna bær sunnan af Seoul.. ferðin var ljúf og tók um 4 tíma

Við náðum JinJu eftir frábært ferðalag um sveitina í Kóreu. Hótelið hér sem er í raun motel gerir greinilega ekki ráð fyrir langtímagistingu þar sem engir skápar / hillur eða pláss yfir höfuð er inná herbergjunum. Rúmmið er það hart að maður fær gott nudd af gormunum yfir nóttina sem og að það ískápurinn er það lítill að ekki er pláss fyrir neitt í honum nema jú kannski  einu epli… en það er þó ekki yfir neinu að kvarta – hótelið býður uppá hársprey, hárgel og silkisloppa…. JinJu er frábær staður

Það er ekki gert ráð fyrir langtíma stoppi á hótelinu okkar.
Það er ekki gert ráð fyrir langtíma stoppi á hótelinu okkar.

Hressu krakkarnir í crewinu fór beint í það að load´a inní leikhúsið… sem er með hvítu parketi – það þarf því að skella dansdúk yfir það

leikmyndin og propsið svífur inní leikhúsið..
leikmyndin og propsið svífur inní leikhúsið..
bílinn sem flutti leikmyndina
bílinn sem flutti leikmyndina
hvíta parketið
hvíta parketið
leikhúsið í JinJu
leikhúsið í JinJu
Faust
Faust

á meðan crewið vann … fórum við hin að skoða lífið í JinJu.

JinJu by night..
JinJu by night..

….og komust að því að það er hægt að kaupa minningar..áður en við héldum á live karaoke stað þar sem við höfðum ekkert í heimamennina…þó við settum fram spaðann Björn Hlyn sem tók bítalögin alveg í lange baner…. þetta kennir okkur það að við verðum að fara að læra kóreska stál&hnífur.. annars er ekki séns …

meir um það síðar 🙂

er rokin út í morgunkaffi og svo að skoða hvernig gengur í leikhúsinu en hér halda ævintýrin áfram og ég skal vera dugleg að segja ykkur frá því

með ást & virðingu Rakel